Það er komin ein hugmynd um …

október 23, 2007 at 7:26 pm (Blogroll)

.. hvað ég á að tjá mig um hérna. Hvað annað en þær bækur sem eru á náttborðinu og í raun alls staðar þar sem er pláss fyrir þær. Það eru jú matreiðslubækurnar mínar og það sem að í þeim er.

Þannig að nú er ég að spá í því að í hvert skipti sem að eitthvað verður mallað upp úr bókunum eða úrklippunum kem ég með það hérna inn. Einnig ætla ég að reyna að hafa það alveg fast að prófa eitthvað úr öllu þessu safni sem að ég á. Að það verði sem sagt einu sinni í mánuði fast sem að ég kem með eitthvað hérna inn.

Og ekki skemmir nú fyrir að nú fer jólatíðin að ganga í garð og þá mun ég koma með uppskriftir af góðum og girnilegum smákökum og kökum og öðrum kræsingum sem að jólunum fylgja.

Einnig ef þið eruð með einhverjar hugmyndir eða uppskriftir sem að ykkur langar að prófa en eigið ekki til þá endilega hafið samband

kv. Snjólaug

Permalink Rita ummæli

Um hvað á að blogga?

október 23, 2007 at 3:07 pm (Blogroll)

Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Ég hef vevrið að velta þessu mikið fyrir mér. Þar sem að það gerist nú ekki mikið í mínu lífi nema það að ég mæti í vinnu á morgnana og kem heim aftur á kvöldin. Helgarnar fara í það að hafa ofan af syninum með misjöfnum árangri.

Þannig að ef þið hafið einhverja hugmynd um hvað ég ætti að nota þessa síðu í þá bara endilega skjóta því hérna inn.

Permalink 3 Ummæli

Víðförul, já ætli það megi ekki segja það

apríl 14, 2007 at 9:27 pm (Blogroll)

Heimskort

Ég hef komið til nokkurra landa. Stoppað styttra í sumum en lengur í öðrum.

Ísland, segir sig sjálft. Stoppaði þar í ein 25 ár og er komin aftur

Noregur, komið þangað 2x. Í 2 vikur í fyrra skiptið og 2 mánuði það næsta

Danmörk, 3x sinnum hef ég komið þangað ef ég man rétt. Fyrsta skiptið þá var ég 9 ára og var þar í 3 eða 4 daga. Vann ferð í ABC. Því næst stoppaði ég í sólarhring þá á leið heim frá Spáni, og næst þar á eftir var það annar sólarhringur en þá á leið til Spánar. Og svo einu sinni enn, en ég held að það teljist ekki með, því að ég fór ekki út úr flugstöðinni.

Færeyjar, þangað hef ég komið 2. Ætli það sé ekki mánuður í heildina. Mjög fallegt land. Mæli með því að kíkja þangað

Ítalía, Þar var ég í 2 mánuði. Yndilslegt land. Væri alveg til í að fara aftur og vera þá lengur.

Frakkland, 2 sinnum hef ég komið þangað þó svo að það teljist varla. Í fyrsta skiptið beið ég á flugvellinum í 7 tíma til að komast til Ítalíu. Þar næst þurfti ég að millilenda þar á leið til Íslands frá Marokkó og gista eina nótt.

England, man ekki hvað oft en nokkrum sinnum. En það hafa bara verið millilendingar

Marokkó, þangað hef ég farið 5x. Og alltaf verið frá 2 vikum upp í mánuð í hvert skipti. Ef ykkur langar að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi þá mæli ég með því að skreppa þangað. Fór meira að segja á skíði þar.

Spánn, Til Spánar hef ég komið 4x. Fyrstu 2 skiptin í sumarfríi, næsta á eftir fór ég til að vinna og vera með Murphy. Í síðasta skiptið var ég í 4 ár.

En nú er ég komin aftur til Íslands og verð hérna eitthvað en hvað lengi get ég ekkert sagt um.

Permalink 2 Ummæli

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.